Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi

Upplýsingafulltrúi

Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir að ráða kraftmikinn einstakling í stöðu upplýsingafulltrúa. Starfið er huti af fjáröflunar- og kynningarsviði félagsins. Við leitum að lausnamiðuðum einstaklingi með brennandi áhuga á kynningarmálum. Í boði er starf sem felur í sér þátttöku í markaðsstarfi, samskiptum við fjölmiðla og eflingu á kynningu á starfi Rauða krossins. Um er að ræða tímabundna stöðu með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í gerð kynningar og markaðsefnis félagsins
  • Upplýsingagjöf og aðstoð við hagaðila og starfsfólk, sem og samskipti við fjölmiðla
  • Tengiliður við fjölmiðla
  • Tengiliður varðandi fræðslu um félagið og starfsemi þess
  • Þátttaka í skipulagningu, framkvæmd viðburða og hátíða á vegum félagsins
  • Sinnir upplýsingaveitu vegna hamfara og áfalla fyrir hönd félagsins
  • Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi innan málaflokksins

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af fjölmiðlum og/eða upplýsingagjöf er æskilegt
  • Mjög góð færni í mannlegum samskiptum er skilyrði
  • Mikill áhugi á málefnum líðandi stundar er skilyrði
  • Rík þjónustulund, framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki
  • Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur
  • Frammúrskarandi íslensku og enskukunnátta skilyrði, önnur tungumál kostur

Fríðindi í starfi

  • Hreyfimínútur
  • Farsímastyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Greiddur farsímareikningur

Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar 2025. Aðeins er tekið við umsóknum í gegnum Alfreð, umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf. Við hvetjum áhugasama af öllum kynjum til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þór Þorsteinsson, teymisstjóri fjáröflunar og kynningarsviðs.

Auglýsing birt8. janúar 2025
Umsóknarfrestur22. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almannatengsl (PR)PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnapchatPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TwitterPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar