Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Upplýsingafræðingar í stafræna vegferð

Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar?

Upplýsingafræðingar í stafræna vegferð óskast.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að upplýsingafræðingum í tímabundin störf til að minnsta kosti tveggja ára með möguleika á framlengingu. Upplýsingafræðingar koma m.a. að innleiðingu á nýju upplýsingastjórnunarkerfi Reykjavíkurborgar sem kallast Hlaðan (GoPro Foris). Um er að ræða aðila sem geta þjónustað kerfið og notendur á meðan á innleiðingu stendur og fram yfir innleiðingu þess. Ásamt því að taka þátt í og bera ábyrgð á að samræma verklag og varðveislu gagna borgarinnar til að auka stafrænt aðgengi þeirra og nýta stafrænar lausnir.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið skiptist í 6 einingar:

Gagnaþjónusta

Skrifstofa sviðsstjóra

Skrifstofa þjónustu og umbreytinga

Stafræn Reykjavík

Upplýsinga- og skjalastýring

Upplýsingatækniþjónusta

Borgin hefur blásið til sóknar til að hraða stafrænum umbreytingum til næstu þriggja ára með græna planinu. Græna planið er metnaðarfullt plan til að draga úr umhverfisáhrifum, skipuleggja græn hverfi og auka framboð stafrænna lausna með notendamiðaðri nálgun. Þannig bregst borgin við aukinni kröfu og þörfum borgarbúa á stafrænum lausnum og auknu aðgengi að gögnum og bættri þjónustu á netinu.

Stafrænar lausnir draga úr pappírsnotkun, umferð og tímasóun sem og auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri hennar.

Ef þú vilt vinna á faglegum, skemmtilegum vinnustað þar sem helsti hvatinn eru umbætur á þjónustu fyrir borgarbúa, krefjandi viðfangsefni og nýsköpun þá er Þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar mögulega rökrétt framhald á starfsferlinum þínum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi, m.a. í upplýsingafræði.
Þekking og eða reynsla af skjalastjórn nauðsynleg.
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
Samskiptafærni og rík þjónustulund.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisstarfi.
Mikill áhugi á stafrænum lausnum og stafrænum umbreytingum.
Hæfni til greiningar og miðlunar á gögnum.
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Mjög góð almenn tölvufærni.
Drifkraftur, frumkvæði, metnaður og nákvæmni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í innleiðingu á upplýsingastjórnunarkerfi.
Þróa, samræma og innleiða verklag til hagnýtingar upplýsinga og gagna í eigu borgarinnar með skilvirkni, öryggi og þægindi að leiðarljósi.
Að farið sé að gildandi lögum og reglum um skjalavistun opinberra aðila og sveitarfélaga.
Ráðgjöf og miðlun á upplýsingum og þekkingu til starfsfólks í skjalavistun, meðhöndlun gagna sem og kennslu á upplýsingastjórnunarkerfinu.
Greina verklag og tækifæri til að nýta stafrænar lausnir í samvinnu við aðra sérfræðinga borgarinnar.
Þátttaka í samráðshópum og teymisstarfi þ.á.m. innleiðingarteymi og samráðsvettvangi upplýsingafræðinga Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt19. febrúar 2021
Umsóknarfrestur6. mars 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar