
Suðurnesjabær
Suðurnesjabær er næstfjölmennasta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 4.350 íbúa. Mikil uppbygging og gróska er í sveitarfélaginu, m.a. með uppbyggingu nýrra hverfa. Í Suðurnesjabæ eru m.a. tveir grunnskólar, tveir leikskólar, tvær íþróttamiðstöðvar og sundlaugar, bóka- og byggðasafn. Auk þess er ýmis önnur þjónusta og starfsemi á vegum sveitarfélagsins. Suðurnesjabær er heilsueflandi samfélag sem býður uppá nálægð við náttúruna og einstaka strandlengju sem umvefur sveitarfélagið.
Umsjónarmaður sumarnámskeiða
Suðurnesjabær leitar að áhugasömum einstaklingum til að sjá um leikjanámskeið sumarsins.
Umsjónarmaður sumarnámskeiða skipuleggur daglegt starf námskeiðanna og stýrir ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar. Námskeiðin samanstanda af leikjanámskeiðum og kofabyggð.
Menntunar- og hæfniskröfur
Að hafa náð 20 ára aldri
Vera hugmyndaríkur og verklaginn
Vera lausnarmiðaður og skipulagður
Hafa góða færni í samskiptum og hæfni til að stýra fólki
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber daglega ábyrgð og yfirumsjón á skipulagningu og starfsemi leikjanámskeiða og kofabyggðar.
Gera dagskrá og skipuleggja verkefni námskeiðanna.
Vinnur markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan þátttakenda í sumarnámskeiðum.
Hefur samskipti við forráðamenn, viðeigandi stofnana og deilda.
Hefur frumkvæði að lausn verkefna á því sviði sem undir hann heyra.
Staðfestir vinnutíma ungmenna úr vinnuskóla skilar til yfirmanna.
Önnur tilfallandi verkefni.
Auglýsing birt27. febrúar 2023
Umsóknarfrestur2. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)

