Salaskóli
Salaskóli
Salaskóli

Umsjónarmaður skólahúsnæðis í Salaskóla

Salaskóli óskar eftir umsjónarmanni skólahúsnæðis í fjölbreytt og lifandi starf

Í Salaskóla eru um 530 nemendur í 1.-10. bekk og eru starfsmenn skólans um 100. Í skólanum er góður starfsandi og áhersla á gott starfsumhverfi.

Ráðningartími og starfshlutafall

Um er að ræða 100% starf og miðað við ráðningu um miðjan maí en í síðasta lagi fyrir upphaf nýs skólaárs (athugið þó að um sumarlokun skóla verður að ræða í lok júní og í júlí).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefur daglegt eftirlit með húsnæði og þrifum skólans, húsgögnum, áhöldum og lóð.
  • Sinnir daglegri verkstjórn skólaliða og skipuleggur störf þeirra við þrif, gæslu, aðstoð í mötuneyti/matsal og önnur dagleg störf.
  • Sinnir minniháttar viðhaldi á eignum og búnaði, tilkynnir um frekari viðhaldsþörf, jafnt innanhúss sem utan og á samskipti við eignasvið Kópavogsbæjar.
  • Sér um að hiti, lýsing og loftræsting sé fullnægjandi og að öll kerfi starfi rétt.
  • Sér um aðgangsstýringar skólahúsnæðis.
  • Stillir upp fyrir og aðstoðar við stærri fundi eða viðburði í skólanum.
  • Sér um að sorp sé fjarlægt og lóðir þrifalegar.
  • Sér um snjómokstur og hálkueyðingu við innganga skólans sem og samskipti við þjónustumiðstöð vegna moksturs/hálkueyðingar á stærri svæðum.
  • Sér um innkaup á hreinlætis- og rekstrarvörum og öðru sem snýr að viðhaldi húss og búnaðar.
  • Sinnir ýmsum útréttingum fyrir skólann.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Iðnmenntun er kostur.
  • Mjög góð almenn verk- og tæknikunnátta.
  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af stjórnun verkefna og starfsmannahópa æskileg.
  • Þjónustulipurð og góð hæfni í samskiptum.
  • Reglusemi, samviskusemi, snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
  • Almenn ökuréttindi og þarf að hafa bíl til umráða. Greitt er kílómetragjald vegna sendiferða samkvæmt kjarasamningi.
  • Góð færni í íslensku, töluðu og rituðu máli.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Þeir sem ráðnir eru til starfa þurfa að heimila upplýsingaöflun úr sakaskrá.

Nánari upplýsingar gefur Kristín Sigurðardóttir skólastjóri í síma 441-3200/840-2393, netfang [email protected]

Við hvetjum fólk af hvaða kyni sem er til að sækja um.

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum Kópavogsbæjar.

Auglýsing birt14. mars 2025
Umsóknarfrestur31. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Versalir 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar