
Domino's Pizza
Það ræður úrslitum fyrir alla starfsemi fyrirtækisins að hafa ánægt, duglegt og vel þjálfað starfsfólk. Forsvarsmenn fyrirtækisins leggja mikla áherslu á að huga að starfsmannastefnu fyrirtækisins og leggja því áherslu á aðlaðandi starfsumhverfi og að skapa starfsmönnum aðstöðu til að eflast og þroskast í starfi. Starfsmannastefnan byggist á þremur þáttum sem eru hverjum manni mikilvægir og stuðla að auknum þroska og uppbyggingu einstaklingsins.

Umsjónarmaður fasteigna hjá Domino's
Við leitum að þjónustulunduðum, jákvæðum og skipulögðum einstaklingi með góða samskiptahæfni og hæfni til að vinna sjálfstætt. Starfið felur í sér víðtæka ábyrgð á viðhaldi og umsjón fasteigna Domino’s, þar með talið eftirlit, utanumhald framkvæmda, samskipti við verktaka og aðra birgja, ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.
Æskilegt er að viðkomandi búi yfir almennri tölvukunnáttu, hafi iðnmenntun og/eða reynslu af sambærilegu starfi, auk góðrar kunnáttu í íslensku og ensku. Bílpróf er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á viðhaldi á öllum fasteignum Domino’s.
- Framkvæmd á reglulegum úttektum á ástandi fasteigna.
- Halda utan um samskipti við verktaka og stýra framkvæmdum vegna viðhalds og viðgerða.
- Bregðast hratt og markvisst við bilanatilkynningum eða atvikum sem upp koma.
- Vera í reglulegum samskiptum við þjónustuaðila.
- Ábyrgð á innkaupum á efni og búnaði tengdum viðhaldi.
- Veita framkvæmdastjóra reglulega upplýsingar um ástand og viðhald verslana.
- Starfa þvert á deildir fyrirtækisins í samráði við framkvæmdarstjóra og rekstrardeild vegna viðhaldsmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn tölvukunnátta.
- Iðnmenntun og/eða reynsla af sambærilegu starfi.
- Góð kunnátta í íslensku og ensku.
- Bílpróf er skilyrði.
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur14. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Lóuhólar 2-6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaHandlagniMannleg samskiptiÖkuréttindiSveinsprófVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (1)