
Umsjónarmaður fasteigna Grundarfjarðarbæjar
Laust er til umsóknar fullt starf í Þjónustumiðstöð Grundarfjarðarbæjar. Starfið felst einkum í umsjón fasteigna og annarra mannvirkja bæjarins. Leitað er að áhugasömum aðila með ríka þjónustulund og metnað til að skila góðu starfi.
Helstu verkefni eru alhliða umsjón og eftirlit með fasteignum bæjarins, viðhaldi og útgjöldum vegna þeirra, samskipti við notendur húsnæðis, verktaka, birgja og fleiri. Starfsmaður hefur aðstöðu í áhaldahúsi bæjarins og starfar náið með verkstjóra, forstöðumönnum stofnana og verkefnisstjóri tæknimála og framkvæmda, sem er næsti yfirmaður.
- Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og útsjónarsemi.
- Geta til að vinna sjálfstætt og takast á við fjölbreytt verkefni.
- Góð verkleg þekking og reynsla. Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af rekstri, áætlanagerð og stjórnun verka er æskileg.
- Rík þjónustulund, lipurð í samskiptum, áhugi og metnaður.
- Bílpróf, góð íslenskukunnáttu og almenn tölvukunnátta, þ.e. að geta notað tölvupóst, excel og helstu vinnutæki.
- Fjölbreytt og krefjandi starf.
- Tækifæri til að hafa áhrif á þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins.
- Fjölbreytt verkefni á sviði framkvæmda, viðhalds og umhverfismála.
- Góðan vinnustað og öflugt samstarf við starfsfólk sveitarfélagsins.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir reynslu og áhuga á starfinu.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Örvar Þór Örlygsson
Verkefnisstjóri tæknimála og framkvæmda
Sími: 430 8500
Netfang: [email protected]
Sækja skal um starfið á alfred.is.
Íslenska










