
Samherji hf.
Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki Evrópu, með víðtæka starfsemi víðsvegar um heim. Samherji hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum verksmiðjum í landi.
Umsjónarmaður fasteigna
Samherji leitar að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi í starf umsjónarmanns fasteigna. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf sem felur í sér daglega umsjón með fasteignum, eftirlit með húsnæði og tækjabúnaði, auk almenns viðhalds og samskipta við þjónustuaðila.
Samherji rekur öfluga útgerð, landvinnslu og fiskeldi og er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegt eftirlit með húsnæði og aðstöðu, bæði innan- og utanhúss
- Fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðir á húsnæði.
- Umsjón og eftirlit með tæknikerfum fasteigna, s.s. loftræstingu, brunakerfum, lyftum og aðgangsstýringum í samstarfi við þjónustuaðila og tæknideildir Samherja.
- Móttaka og úrvinnsla viðhalds- og bilanatilkynninga, skráning og eftirfylgni
- Samskipti við verktaka og þjónustuaðila vegna viðhalds og framkvæmda
- Umsjón með þjónustusamningum, innkaupum og rekstrarþáttum tengdum fasteignum
- Umsjón með umhirðu lóða
- Gerð og eftirfylgni viðhalds- og viðgerðaráætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun eða tæknimenntun á byggingasviði, s.s. húsasmíði, rafvirkjun eða pípulagnir
- Reynsla af umsjón eða viðhaldi fasteigna er æskileg
- Þekking á tæknikerfum fasteigna er kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, þjónustulund og samstarfsvilji
- Snyrtimennska, nákvæmni í starfi og stundvísi
- Góð íslenskukunnátta og almenn tölvukunnátta
- Grunnkunnátta í ensku er kostur
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Glerárgata 30, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
HúsasmíðiMannleg samskiptiPípulagningarRafvirkjunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (6)

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Tæknimaður á Akureyri
Coca-Cola á Íslandi

Umsjónarmaður húseigna og búnaðar
Háskólinn á Akureyri

Umsjónarmaður viðhalds / Maintenance & Facilities Coordinator
Nafnlaust fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu