
Brúarskóli
Brúarskóli óskar eftir umsjónarkennara í 100% stöðu. Brúarskóli er sérskóli fyrir nemendur í 4. - 10. bekk sem hafa átt erfitt með að fóta sig í almennum skóla. Skólinn er tímabundið úrræði og starfar á fjórum stöðum, í Vesturhlíð, Grafarvogi, Dalbraut og Stuðlum. Í starfinu er lögð áhersla á félagsfærni, samskipti og jákvæða uppbyggingu hvers einstaklings. Meðal annars er unnið út frá áfallamiðaðri nálgun, atferlisstefnu um mótun hegðunar og út frá styrkleikum hvers og eins. Allir nemendur eru með einstaklingsbundin markmið bæði í námi og félagsfærni. Í skólanum er góður starfsandi, teymisvinna og stuðningur við nýtt starfsfólk. Við leitum að hressum og áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að sinna skemmtilegu og jafnframt krefjandi starfi.
Umsjónarkennari óskast í Brúarskóla
- Skipuleggja og annast kennslu nemenda í samvinnu við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Vera virkur þátttakandi í teymisvinnu
- Taka þátt í samstarfi samstöðva skólans
- Taka þátt í þróunarvinnu innan skólans
- Vera nemendum góð og jákvæð fyrirmynd
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
- Færni í að vinna í teymi að fjölbreyttum verkefnum
- faglegur metnaður
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki
- Reynsla af því að vinna með börn og unglinga í alvarlegum geð- og hegðunarvanda æskileg
- Þekking á því að takast á við erfiða hegðun æskileg
- stundvísi
- Góð íslenskukunnátta
- Hreint sakarvottorð
Auglýsing birt31. júlí 2024
Umsóknarfrestur14. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vesturhlíð 3, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Lækur óskar eftir leikskólakennara
Lækur

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Heiðarskóli - Umsjónarkennari á miðstigi
Reykjanesbær

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Miðberg

Kennari – Leikskólinn Tjarnarás
Hafnarfjarðarbær

Kennari – Heilsuleikskólinn Hamravellir (tímabundin ráðning)
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Kór