Varmárskóli
Varmárskóli
Varmárskóli

Umsjónarkennari í Varmárskóla

Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða umsjónarkennara fyrir næsta skólaár

Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Þá er unnið með Byrjendalæsi í 1.-4.bekk og Læsi fyrir lífið í 5.-6.bekk. Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum er mikið samstarf um nám og kennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur, samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins og starfsandi hefur verið mjög góður. Okkur vantar umsjónarkennara sem eru tilbúnir til að takast á við þessi verkefni og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall er á bilinu 80-100%.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslustarfa
  • Reynsla sem nýtist í starfi
  • Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
  • Góð færni í samvinnu og samskiptum
  • Hugmyndaauðgi, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar