
Umsjónarkennari í teymi 7.-8. bekkja (raungreinar, stærðfræði og náttúrufræði)
Umsjónarkennarastarf fyrir næsta skólaár 2026-2027
Nemendahópur Álftamýrarskóla er fjölbreyttur og þarfir nemenda margvíslegar. Álftamýrarskóli er fjölmenningarlegur skóli þar sem rúmlega 30% nemenda eru af erlendum uppruna, af um 30 mismunandi þjóðernum. Í aga- og samskiptamálum er stuðst við verkfæri Uppeldi til ábyrgðar og lögð er mikil áhersla á leiðsagnarnám. Í læsiskennslu er unnið út frá aðferðum Byrjendalæsis og Pals. Álftamýrarskóli er teymiskennsluskóli og margverðlaunaður fyrir góðan starfsanda.
Annast kennslu nemenda í samráði og samvinnu við aðra kennara í teymi, skólastjórnendur og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.
Stuðla að velferð nemenda í samstarfi og samráði við foreldra og annað fagfólk.
Kennsluréttindi grunnskólastigi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Faglegur metnaður
Brennandi áhugi á starfi með börnum og unglingum
Teymiskennsluhugsun
Áhugi á fjölbreyttum kennsluaðferðum
Góð íslenskukunnátta
Sundkort í sundlaugar Reykjavíkur
Menningarkort
Samgöngustyrkur
Íslenska










