Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins og þar starfa um 2000 manns. Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á af þekkingu, ábyrgð og metnaði.
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli

Hraunvallaskóli auglýsir eftir kennara til að sinna umsjónarkennslu á yngsta stigi skólaárið 2023-2024.

Starfshlutfall er 80-100% og gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf sem fyrst.

Hraunvallaskóli hefur þá sérstöðu að innan veggja hans er rekinn bæði leik- og grunnskóli. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði opna skólans og er byggingin hönnuð með það í huga. Í kennsluskipulagi er lögð áhersla á skipulag sem byggir á hópavinnu, þemanámi, einstaklingsvinnu, þrautalausnum, gagnrýnni hugsun og færni nemenda til að afla sér þekkingar og nýta sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni í því skyni. Kennarar vinna saman í teymum í kennslustundum og við skipulagningu og undirbúning kennslunnar. Nemendur í sama árgangi eru í sameiginlegum umsjónarhópum með sameiginlega umsjónarkennara á sínum heimasvæðum.

Dyggðir Hraunvallaskóla eru vinátta, samvinna og ábyrgð.

Helstu verkefni og ábyrgð
Annast almenna kennslu og faggreina kennslu á yngsta stigi í samráði samkennara, skólastjórnendur og foreldra
Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk skólans
Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
Vinnur eftir SMT skólafærni sem ætlað er að skapa gott andrúmsloft í skólum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
Skýr skuldbinding gagnvart stefnu og áherslum skólans
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu (Leyfisbréf fylgi umsókn)
Reynsla af kennslu yngri barna æskileg
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
Stundvísi og samviskusemi
Auglýsing stofnuð18. september 2023
Umsóknarfrestur2. október 2023
Starfstegund
Staðsetning
Drekavellir 9, 221 Hafnarfjörður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.