
Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Umsjónarkennari á miðstigi frá 1. ágúst 2025
Laust er til umsóknar starf umsjónarkennara á miðstigi í Austurbæjarskóla frá og með 1. ágúst nk. Gert er ráð fyrir að viðkomandi kennari starfi í teymi. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Menntun og hæfni til að sinna bekkjarkennslu og starfa með börnum.
- Reynsla og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar þarfir.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta áskilin.
Auglýsing birt14. apríl 2025
Umsóknarfrestur28. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GoKennariMannleg samskiptiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari á yngsta stigi
Breiðagerðisskóli

Forfallakennari - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Hagaborg

Leikskólakennari í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Vatnsendaskóli leitar að kennara í hönnun og smíði
Vatnsendaskóli

Sérkennslustjóri óskast til starfa - Leikskólinn Bakkakot
LFA ehf.

Vatnsendaskóli óskar eftir umsjónarkennurum
Vatnsendaskóli

Deildarstjóri Leikskólinn Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Leikskólakennari við Leikskólann Lyngholt, Reyðarfirði
Fjarðabyggð

Dönskukennari í Smáraskóla
Smáraskóli

Umsjónarkennari á miðstigi
Smáraskóli

Leikskólakennari í stöðu deildarstjóra
Leikskólinn Borg