
Víkurskóli
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi.
Áhersla er lögð á samstarf kennara og fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda Uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar.
Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Umsjónarkennari
Víkurskóli, Vík í Mýrdal leitar að metnaðarfullum og drífandi umsjónarkennara.
Starfinu fylgja bæði flutningsstyrkur og húsnæðishlunnindi.
Um 80-100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og kennsla samkvæmt aðalnámskrá með hliðsjón af þörfum nemenda
- Skipulag náms og kennslu samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla.
- Samstarf við foreldra um nám og velferð nemenda
- Samstarf innan skólans að faglegum málefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum og nálgast þau út frá ólíkum þörfum
- Góð færni í samskiptum og vilji til þátttöku í samstarfi og teymisvinnu
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Mjög góð íslenskukunnátta bæði í töluðu máli og rituðu (C1)
Fríðindi í starfi
Starfinu fylgja bæði flutningsstyrkur og húsnæðishlunnindi.
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Mánabraut 3, 870 Vík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiKennariMannleg samskiptiTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)


