
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Umsjónakennarar Stekkjaskóla
Auglýst er eftir umsjónarkennurum á yngsta- og miðstig í 100% starfshlutföll frá 1. ágúst 2024. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennurum sem vilja kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp.
- Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn.
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni og áhugi á skólastarfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur.
Auglýsing birt26. mars 2024
Umsóknarfrestur8. apríl 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðarstekkur 10
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forfallakennari í Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

Heiðarskóli - Umsjónarkennari á miðstigi
Reykjanesbær

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Dönskukennari óskast til starfa við Árbæjarskóla, afleysing í eitt ár.
Árbæjarskóli

Stuðningsfulltrúi með börnum með sérþarfir – starf sem skiptir máli
Arnarskóli

Leiðbeinendur í leikskóla á Reyðarfirði
Leikskólinn Lyngholt

Laus staða leikskólakennara
Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari í unglingadeild – Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær