

Umönnunarstarf á öldrunardeild á Landakoti
Við sækjumst eftir jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur ánægju af samstarfi við aldraða. Í boði er gefandi starf þar sem áhersla er lögð á jákvætt framlag sérhvers einstaklings, þátttöku og samvinnu í daglegum störfum.
Öldrunardeild er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur. Þar dvelja sjúklingar með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili.
Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun. Unnið er í vaktavinnu og er vinnufyrirkomulag og starfshlutfall samkomulag. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir sem getur orðið enn minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska




























































