Hrafnista
Hrafnista
Hrafnista

Umönnun sumar- og framtíðarstörf - Hraunvangur

Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starftækifæri? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnista Hraunvangi leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt störf. Laus eru sumar og framtíðarstörf í umönnun og í býtibúri.
Um er að ræða:
80-85% sumarstörf í umönnun í vaktavinnu með möguleika á framhaldsráðningu. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
90% sumarstarf í býtibúri. Starfið er að mestu leyti unnið á dagvinnutíma.
90-100% umönnunarstarf í vaktavinnu frá og með mánaðamótum júlí/ágúst. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
60-90% umönnunarstarf í dagvinnu frá miðjum ágúst.

Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs
  • Þvottur og/eða aðstoð í eldhúskróki deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæði í starfi og stundvísi
  • Metnaður í starfi og öguð vinnubrögð
  • Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri
Auglýsing stofnuð7. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Brúnavegur 13, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar