
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Umönnun Hraunvangur - fullt framtíðarstarf
Ert þú samviskusamur og drífandi einstaklingur í leit að skemmtilegu starftækifæri í haust? Langar þig að starfa við að gera líf annarra innihaldsríkara og hafa raunveruleg áhrif í vinnunni?
Þá erum við mögulega að leita að þér!
Hrafnista Hraunvangi leitar að öflugu starfsfólki í fjölbreytt umönnunarstörf. Um er að ræða 80-100% starf í vaktavinnu (einnig stendur til boða fullt starf í dagvinnu).
Mikilvægt er að fólk í vaktavinnu geti unnið dagvaktir í bland við aðrar vaktir.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfsfólk í umönnun sinnir fjölbreyttum verkefnum og er enginn vinnudagur eins. Það starfar náið með íbúum og aðstoðar þá meðal annars við fataskipti, böðun, salernisferðir, matmálstíma, lyfjainntöku og félagslegan stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs
- Þvottur og/eða aðstoð í eldhúskróki deildarinnar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð færni í samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og stundvísi
- Metnaður í starfi og öguð vinnubrögð
- Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 18 ára aldri
Auglýsing birt8. október 2024
Umsóknarfrestur20. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hraunvangur 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðStundvísiUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sjúkraliði Efri byggð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast í Skammtímadvöl Árlandi 9
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – vantar fólk í aukavinnu
Andrastaðir

Umönnunarstörf - Sóltún Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Svæðisstjóri - tímabundið starf
Skólamatur

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Fjölbreytt og skemmtilegt starf á Tannlæknastofu
Tannlæknastofa Grafarvogs

Óska eftir konum í vaktavinnu
NPA miðstöðin

Aðstoð í eldhúsi / Kitchen assisant
Grillmarkaðurinn ehf.

Óska eftir aðstoðarkonu í fjölbreytt starf
NPA miðstöðin

Starfsfólk á Heimili fyrir Börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Skólamatur