TM
TM
TM

Tryggingastærðfræðingur

Við leitum að einstaklingi með sterkan fræðilegan grunn og framúrskarandi greiningarhæfni í hlutverk tryggingastærðfræðings félagsins.

Starfið er krefjandi og fjölbreytt og felur í sér mat á vátryggingaskuld og vátryggingaáhættu ásamt verkefnum tengdum tjónaþróun, verðlagningu og arðsemi.

Auk reglubundinna verkefna tryggingastærðfræðings mun viðkomandi taka þátt í ýmsum stefnumótandi þróunar- og umbótaverkefnum þar sem lögð er áhersla á aukna sjálfvirkni og betri nýtingu gagna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á starfssviði tryggingastærðfræðings.
  • Mat á vátryggingaskuld, þar á meðal tjónaskuld, og greining á vátryggingaáhættu.
  • Vinna með gögn, forsendur og gæði tryggingastærðfræðilegra útreikninga.
  • Reglubundin skýrslugjöf, greiningar og framsetning niðurstaðna fyrir stjórnendur, stjórn og aðra hagaðila.
  • Þróun og endurbætur á líkönum, aðferðum og verkferlum.
  • Greining á tjónaþróun, arðsemi og verðlagningu vátryggingavara.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistara- eða doktorspróf í tryggingastærðfræði, tölfræði, stærðfræði eða skyldum greinum.
  • Haldbær reynsla á sviði tryggingastærðfræði eða tölfræði.
  • Góð færni í R og/eða Python, auk SQL.
  • Sterk greiningarhæfni og geta til að vinna með flókin gögn og líkön.
  • Þekking á tryggingafræðilegum aðferðum, GLM-líkönum og tölfræðilegu gagnanámi er kostur.
  • Nákvæmni, sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að útskýra flókin viðfangsefni á skýran hátt.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Auglýsing birt1. júlí 2026
Umsóknarfrestur2. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SQL
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar