
ÍAV
ÍAV - Íslenskir aðalverktakar hf. voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954.
Frá þeim tíma til dagsins í dag hafa orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerðar, jarðvinnu eða gatnagerð.
ÍAV hf er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðsvegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.

Trésmiðir
ÍAV óskar eftir að ráða smiði til starfa hjá félaginu á höfuðborgarsvæðinu. Fjölbreytt verkefni í boði og góð verkefnastaða. Um er að ræða fullt starf fyrir rétta aðila.
ÍAV leggur mikið upp úr góðri mætingu og reglusemi.
ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði eða opinberar byggingar.
ÍAV er fjölskylduvænn vinnustaður.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almennt viðhald fasteigna
- Almenn nýsmíði og innanhúsbreytingar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun í faginu
- Reynsla og kunnátta í húsasmíð
- Reglusemi og stundvísi
- Góð Íslensku og Ensku kunnátta
Auglýsing birt23. ágúst 2024
Umsóknarfrestur24. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
HandlagniSmíðarStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




