

Tónmenntakennari /sviðslistakennari – Lækjarskóli
Lækjarskóli óskar eftir tónmenntakennara - sviðslistakennara í 100% starf
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins. Undanfarið skólaár höfum við unnið markvisst með þrjú meginmarkmið: Starfsánægju, samræmt námsmat og upplýsingatækni.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Á næsta skólaári hefur Lækjarskóli innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda og fá þá til að taka virkan þátt og bera ábyrgð á eigin námi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að annast kennslu nemenda
- Að standa vörð um velferð og nám barnanna
- Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
- Kennlusréttindi í grunnskóla
- Reynsla af tónmennta og/eða sviðslistakennslu í grunnskóla eða tónlistarskóla æskileg
- Kostur ef viðkomandi spilar á hljóðfæri og getur stýrt fjöldasöng
- Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
- Áhugi á teymisvinnu
- Hæfni í samskiptum
- Frumleiki og sjálfstæði
- Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu
- Góð tölvukunnátta
- Jákvæðni ogáhugi á að starfa í skapandi umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við Örnu B. Arnardóttur skólastjóra, [email protected] .
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.













































