Tónlistarkennari óskast
Við Tónlistarskóla Fjarðabyggðar vantar rytmískan söngkennara í afleysingar frá 1. janúar 2025 til eins árs í allt að 100% stöðu. Aðalstarfsstöð verður í Neskaupstað.
Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2025. Aðalkennslugrein er rytmískur söngur, en aðrar kennslugreinar koma líka til greina og fer eftir hæfni, vilja og getu viðkomandi kennara.
Í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar eru um 300 nemendur og eru flestir á grunnskólaaldri. Kennsla fer fram á skólatíma grunnskóla að mestu leyti og eru tónlistarkennslustofur í sama húsnæði og grunnskólarnir. Mjög gott samstarf er við grunn- og leikskóla. Alls eru sex starfsstöðvar og kennarar við skólann geta þurft að kenna á mismunandi starfsstöðvum.
Mikið og gott samstarf er milli kennara og skólinn kennir eftir hugmyndafræði lærdómssamfélagsins.
- Kennsla nemenda í samræmi við þarfir þeirra og samkvæmt aðalnámskrá og skólanámskrá.
- Undirbúningur nemenda fyrir próf, tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
- Skipulag og utanumhald á kennslu eigin nemenda.
- Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
- Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
- Tónlistarkennaramenntun eða haldgóð tónlistarmenntun sem nýtist í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð