

Tómstundarfræðingur sem getur sinnt aðstoð við kennslu óskast til starfa
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum auglýsir eftir metnaðarfullum og kraftmiklum tómstundarfræðing sem getur leitt frístund Waldorfskólans og einnig sinnt aðstoð við kennslu. Hver dagur felur í sér nýja áskorun og ný spennandi viðfangsefni. Gott væri að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 3-16 ára barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolf Steiner. Jöfn áhersla er lögð á verklegt, listrænt og bóklegt nám.
Skólinn er staðsettur í Lækjarbotnum, 9 km fyrir austan Norðlingaholt í yndislegri náttúru sem hefur skapandi og nærandi áhrif á börnin og starfsfólkið.
· Skipuleggja áhrifaríka og spennandi útidagskrá fyrir nemendur
· Aðstoðað nemendur við að finna sig í félagslegum samskiptum
· Stuðlað að vináttu og efla félagsfærni nemenda
· Fyrirbyggjandi starf og fræðsla
· Ber ábyrgð á mótun og skipulagningu skóladagsins í samráði við umsjónarkennara
· Aðstoðar nemendur í kennslustundum undir handleiðslu umsjónarkennara
· Umsjón með frímínútnagæslu
· Gætir að frágangi húsnæðis og útisvæðis að loknum vinnudegi
· Menntun í tómstunda- og félagsmálafræði
· Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
· Hæfni og áhugi á skólastarfi
· Reynsla af því að vinna með börnum og unglingum
· Góð færni í mannlegum samskiptum
· Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
· Þekking og/eða vilja til að tileinka sér waldorfuppeldisfræði
· Leyfisbréf grunnskólakennara er kostur
· Menntun í uppeldis- og menntunarfræði er kostur
- Starfsmenn geta tekið skólarútu skólans sér að kostnaðarlausu til og frá vinnu
- Starfsmenn skólans njóta gjaldfrjálsra máltíða á vinnutíma
Íslenska










