Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Skarðið – Skarðshlíðarskóli

Félagsmiðstöðin Skarðið býr börnum og unglingum í 5. - 10. bekk vettvang fyrir fjölbreytt og skemmtilegt tómstundastarf í húsnæði Skarðshlíðarskóla eftir að hefðbundnum skóla lýkur. Starfið er unnið á grunni unglingalýðræðis og í anda forvarna. Skarðið er vettvangur fyrir opið félagsstarf, skipulagða dagskrá, hópastarf og ýmsa viðburði sem starfsfólk framkvæmir með unglingunum.

Um er að ræða ca. 25% starfshlutfall utan hefðbundins vinnutíma. Starfið hentar vel fyrir skólafólk eða fyrir þá sem eru að leita sér að aukavinnu.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í skólanum eru nemendur frá 1. – 10.bekk. Þegar skólahverfið verður fullbyggt verða um 450 til 500 nemendur í 1. til 10.bekk. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu skólans www.skardshlidarskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tekur þátt í að skipuleggja og móta fjölbreytta dagskrá.
  • Mikil samskipti og samvinna við börn og unglinga.
  • Skapa jákvætt andrúmsloft sem byggir á virðingu og lýðræðislegum vinnubrögðum.
  • Stuðningur við frumkvæði barna og unglinga, tryggir öryggi þeirra og vellíðan.
  • Leitast við að virkja sem flesta óháð getu eða þroska í fjölbreyttu verkefni og taka fullan þátt í þeim verkefnum og viðburðum sem eru skipulögð.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsþjálfun, námskeið og/eða nokkur starfsreynsla nægir til að öðlast þá þekkingu sem krafist er.
  • Mikill áhugi af starfi með börnum og unglingum.
  • Stundvísi og skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Lipurð í samskiptum sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi félagsmiðstöðva.
  • Almenn tölvukunnátta.
  • Gott vald á íslensku

Skilyrði fyrir ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Fjóla Sigrún Sigurðardóttir, deildarstjóri tómstundamiðstöðvar, í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 19.ágúst

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt5. ágúst 2025
Umsóknarfrestur19. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Tröllaheima - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri í búsetukjarna á Drekavöllum
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í yngri deild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forstöðumaður á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Setrið, Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari í sérdeild - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tækjamaður í garðyrkju - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tækjamaður - Þjónustumiðstöð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skipstjóri/hafnarvörður - Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinendur í Mosann – Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður óskast til starfa í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stig - Áslandsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær