NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál. Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana. Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.
NPA miðstöðin

Tölvulæs aðstoðarmaður óskast

Aðstoðarmanneskja óskast á vaktir virka daga og um helgar

  • Tölvulæs
  • Jákvæð
  • Drífandi

Starfið, sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, felur í sér að aðstoða 47 ára mann á heimili sínu í Reykjavík við athafnir daglegs lífs en líka með ýmis verkefni eins og að aðstoða við að setja upp tölvuaðstöðu heima fyrir.

Nánar má lesa um hugmyndarfræðina um sjálfstætt líf og NPA á vefsíðunni www.npa.is.

Laun eru samkvæmt sérkjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu.

Auglýsing stofnuð29. ágúst 2022
UmsóknarfresturEnginn
Starfstegund
Staðsetning
Urðarhvarf 8, 203 Kópavogur
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.