
VÍS
VÍS er framúrskarandi vinnustaður með einstaka vinnustaðamenningu.
Við erum fyrirmyndarfyrirtæki, leggjum áherslu á jafnrétti og höfum útrýmt launamun kynjanna.
Við sköpum tækifæri fyrir starfsfólkið okkar til þess að vaxa og dafna – í lífi og starfi. Við bjóðum upp á nýsköpunarumhverfi og elskum hugrekki.
VÍS ætlar að breyta því hvernig tryggingar virka og þannig fækka slysum og tjónum. Við leggjum ríka áherslu á sjálfbærni því við vitum að það er framtíðin.

Tjónaskoðunarmaður
Ert þú bifreiðasmiður, bifvélavirki og eða bílamálari? Þá gætum við verið að leita að þér.
Við leitum að tjónaskoðunarmanni sem mun tilheyra öflugum hópi starfsfólks munatjóna. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og hentar einstaklingum sem er reynslumikið fagfólk í sinni iðngrein.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta viðskiptavini við uppgjör á tjónum á ökutækjum og vinnuvélum.
- Meta tjónaskoðanir og kostnaðaráætlanir frá þjónustuaðilum.
- Fylgja eftir viðgerðum og uppgjöri á ökutækjum.
- Uppgjör tjónabóta til viðskiptavina fyrir ökutæki eða vinnuvélar.
- Samskipti og upplýsingagjöf til verkstæða, viðskiptavina og samstarfsmanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveinspróf í bifreiðasmíði, bifvélavirkjun og/eða bílamálun skilyrði, meistararéttindi kostur.
- Mikil alhliða reynsla af viðgerðum á ökutækjum skilyrði. Kostur að hafa reynslu af viðgerðum á stærri ökutækjum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Rík þjónustulund og samskiptafærni.
Tjónaskoðun fer að miklu leyti fram í gegnum Cabas tjónamatskerfið og því er reynsla af því kerfi kostur.
Fríðindi í starfi
-
Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
-
Frábært mötuneyti
-
Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
-
Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki
-
Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
-
Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi
Auglýsing birt9. maí 2025
Umsóknarfrestur18. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkstæðishjálp - Workshop helper
Garðlist ehf

Ferðavagnaviðgerðir / Bílaviðgerðir sumar- og framtíðarstarf
Bílaraf ehf

Starfsmaður á breytingaverkstæði
Arctic Trucks Ísland ehf.

Viðhald og eftirlit með tækjum og búnaði
Vegagerðin

Bifvélavirki / vélvirki óskast - Car mechanic
Íslenska gámafélagið

Bifvélavirki / Mechanic - Summer job (May - Oct)
Lotus Car Rental ehf.

Verkstjóri á verkstæði Íslyft í Kópavogi
Íslyft / Steinbock þjónustan ehf

Bifvélavirki fyrir Peugeot, Citroën, Opel og Mazda
Mazda, Peugeot, Citroën og Opel á Íslandi | Brimborg

Vélvirki fyrir Velti
Veltir

Viðgerðarmenn og vélstjórar á þjónustuverkstæði
VHE

Starfsmaður í skiltagerð - Vanir og óvanir
Velmerkt ehf

Experienced construction worker - Byggingastarfsmaður
Einingaverksmiðjan