Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli, Selfossi

Tímabundin staða húsvarðar við Vallaskóla

Vallaskóli auglýsir tímabundna stöðu húsvarðar. Um er að ræða 100% stöðu eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. janúar 2026 eða eftir samkomulagi. Vallaskóli er stór skóli með rúmlega 500 nemendur og yfir 100 starfsmenn í þremur byggingum. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða umsjón með fasteignum, viðhaldi og tæknibúnaði, auk þess að stuðla að umhverfisvænum og sjálfbærum rekstri.

Við bjóðum:

  • Fullt starf á dagvinnutíma.
  • Fjölbreytt verkefni í lifandi skólasamfélagi.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á umhverfisvænan rekstur.
  • Jákvætt og samvinnuþýtt starfsumhverfi.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Daglegt eftirlit með húsnæði, innanstokksmunum og lóð og að allur aðbúnaður uppfylli öryggiskröfur. 
  • Minniháttar viðgerðir og samhæfing stærri viðhaldsverkefna. 
  • Samskipti við verktaka og þjónustuaðila. 
  • Umhirða lóðar og umhverfis. 
  • Stuðningur við skólastarf, m.a. við uppsetningu búnaðar og flutningur húsgagna. 
  • Framfylgja umhverfis- og sjálfbærnimarkmiðum (orkusparnaður, sorpflokkun). 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun eða góð reynsla af iðnstörfum úr byggingageiranum er æskileg. 
  • Reynsla af húsumsjón eða sambærilegu starfi er kostur. 
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð er skilyrði. 
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund er skilyrði. 
  • Grunnþekking á rafmagns-, pípulagnings- og byggingartækni er kostur. 
  • Grunnþekking á upplýsingatækni og netkerfum er kostur. 
  • Þekking á umhverfis- og sjálfbærnimálum er kostur. 
Auglýsing birt2. desember 2025
Umsóknarfrestur15. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar