
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyingar sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Tímabundið starf í mötuneyti Símans
Ertu morgunhress og leitar að skemmtilegu starfi? Síminn leitar að duglegum og hressum matráði í mötuneyti fyrirtækisins. Starfið felur í sér umsjón með salatbar, aðstoð við matseld ásamt undirbúningi og frágangi í kringum morgun- og hádegisverð. Síminn leggur mikla áherslu á að bjóða upp á góðan og hollan mat þar sem reynt er að elda sem mest frá grunni. Vinnutíminn er frá 07:00-15:00 alla virka daga.
Starfið er tímabundið í eitt ár.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Góður liðsfélagi með mikla aðlögunarhæfni
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
- Stundvísi og reglusemi
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri
Auglýsing birt27. ágúst 2024
Umsóknarfrestur8. september 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í borðsal og þjónustumiðstöð - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Starfsmaður í veitingaeldhús
Ráðlagður Dagskammtur

Viltu grilla með okkur?
Hagavagninn

Matreiðslumaður óskast
Matur og Drykkur

Samlokumeistari Subway Akureyri
Subway

Delivery driver - Inventory and Utility
DEIG bakery

Barþjónn/Þjónn/Starfsmaður í veitingasal
Iceland Parliament hótel

Vaktstjóri í eldhúsi-Shiftleader kitchen
Spíran

Þjónn með reynslu
Hofland eatery

Barþjónn óskast
EIRIKSSON BRASSERIE

Production employee
Eldum rétt

Matreiðslumaður / Kitchen staff
Apotek kitchen + bar