Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Þróunarstjóri stafrænna lausna

Viltu leggja þitt af mörkum í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar?

Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að metnaðarfullum þróunarstjóra stafrænna lausna í deild kerfislausna- og hugbúnaðarþróunar. Þróunarstjóri leiðir teymi sérfræðinga og vinnur náið með öðrum leiðtogum á sviðinu að uppbyggingu, yfirsýn og framþróun hugbúnaðarþróunarferla. Í deildinni eru um 50 öflugir sérfræðingar samanstanda af starfsmönnum og verktökum.


Sem þróunarstjóri munt þú ...

  • Taka þátt í að leiða og móta stefnu hugbúnaðarþróunar í stafrænni vegferð Reykjavíkurborgar
  • Hafa yfirsýn yfir framgang verkefna teyma
  • Innleiða agile verklag
  • Móta og þróa vinnuferla og gæðamál í hugbúnaðarþróun
  • Leiða og styðja leiðtoga þróunarteyma að vinna eftir settum ferlum
  • Leiða teymisuppbyggingu og mönnun teyma
  • Sjá til þess að miðla viðeigandi upplýsingum til þróunarteyma
  • Byggja upp og hlúa að samskiptum við birgja, aðra hagaðila og samstarfsaðila
  • Taka þátt í greiningarfasa verkefna
  • Taka þátt í samráðshópum og teymisstarfi
  • Taka þátt í vali á verktökum og útboðsgerð á verkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking á starfsemi Reykjavíkurborgar er kostur
Agile próf eða víðtæk reynsla við innleiðingu og/eða teymisstýringu í Agile aðferðafræði
Þekking og reynsla af ferlum og aðferðafræði hugbúnaðarþróunar og/eða verkefnastjórnunar
Reynsla af teymisstjórnun er kostur
Mikill áhugi á stafrænum lausnum
Þekking á vefþróun æskileg (React, Typescript)
Framúrskarandi leiðtogahæfni og hæfni í mannlegum samskiptum
Hæfni til greiningar og miðlun upplýsinga
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður
Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti
Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Auglýsing birt30. mars 2023
Umsóknarfrestur16. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar