Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarleikskóli
Skarðshlíðarleikskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf.
Skarðshlíðarleikskóli er fjögurra deilda leikskóli sem uppfyllir nútímakröfur leikskólastarfs. Hann er staðsettur að Hádegisskarði 1 í einungis 4 mínútna fjarlægð frá Reykjanesbraut um Kaldárselsveg. Hugmyndafræðilegur grunnur skólans tekur mið af lærdómssamfélagi (e. Professional Learning Community) þar sem allir læra saman og áhersla lögð á virka þátttöku við að þróa öflugt skólastarf. Við leggjum áherslu á lýðræði, frumkvæði og lífsgleði í daglegum samskiptum og að auka leikni og færni barnanna í gegnum leikinn. Stefna skólans tekur mið af Fjölgreindakenningu Howards Gardners og Uppeldi til ábyrgðar.
Þar sem þetta er nýr leikskólinn færð þú tækifæri til að taka þátt í að móta námskrá leikskólans, búa til hefðir og starfa í nánu samstarfi við grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahús og bókasafn, því við verðum öll í sömu byggingunni. Okkur er mikið í mun að skapa góðan og skemmtilegan starfsanda þar sem allir fá að njóta sín og leggja sitt að mörkum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Vinnur að uppeldi og menntun barns/barna með sérþarfir.
- Gerir áætlanir, sinnir þjálfun, leiðsögn og stuðningi barna með sérþarfir
- Skipuleggur og heldur utan um sérkennslu í nánu samstarfi við sérkennslustjóra
- Er í samstarfi við foreldra og fagaðila um velferð barnsins
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Þekking á skipulagðri kennslu (TEACCH) er kostur
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Færni í samskiptum og samstarfshæfni
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Berglind Kristjánsdóttir, leikskólastjóri, berglindkrist@hafnarfjordur.is. Einnig er hægt að hafa samband í síma: 527 7380.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.
Umsóknarfrestur er til 3. október 2024
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Fríðindi í starfi:
- 75% afsláttur af leikskólagjöldum
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
- Bókasafnskort
- Forgangur á leikskóla