Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Þroskaþjálfi í Sunnulækjarskóla

Auglýst er 100% staða þroskaþjálfa

í Sunnulækjarskóla vinna allir í teymum. Þannig nýtum við styrkleika og margbreytileika hópsins betur og margar hendur vinna létt verk. Umsjónarkennarar og fagaðilar innan árgangs mynda árgangateymi sem og list- og verkgreinakennarar, íþróttakennarar og sérkennarar ásamt þroska- og iðjuþjálfum. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Setrið er deild í Sunnulækjarskóla. Deildin veitir nemendum með sérþarfir fjölbreytt nám sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu. Áhersla er lögð á að nemendur geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra.

Þroskaþjálfi veitir leiðsögn og ráðgjöf til foreldra, kennara og annarra starfsmanna ásamt því að þjálfa og styðja við nám nemenda er þurfa á sértækum stuðningi að halda.

Í sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þroskaþjálfi vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra. Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast skólanum í samráði við deildarstjóra.
  • Vinnur að áætlanagerðum, þ.m.t. skólanámskrá, bekkjaráætlunum og einstaklingsáætlunum í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Gerir færni-, þroska- og námsmat í samráði/samstarfi við kennara, stuðningsfulltrúa, foreldra og aðra eftir því sem við á.
  • Skipuleggur þjálfunaraðstæður, velur/útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa um háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi til að starfa sem slíkur.
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni og áhugi á skólastarfi.
  • Færni í mannlegum samskiptum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Auglýsing birt16. september 2024
Umsóknarfrestur26. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar