Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi eða háskólamenntaður sérfræðingur í skammtímadvöl- Svöluhraun

Ráðning þroskaþjálfa eða annars háskólamenntaðs sérfræðings til starfa í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til starfa þroskaþjálfa eða starfsmann með sambærilega menntun sem nýtist í starfi. Skammtímadvöl er fyrir fötluð börn og ungmenni og er misjafnt hvað þau dvelja lengi í senn. Hlutverk með skammtímadvöl er að veita börnum og fjölskyldum þeirra stuðning. Á meðan á dvöl stendur fá börnin og ungmennin aðstoð við sín daglegu verkefni, njóta umönnunar og afþreyingar.

Starfshlutfall er 60-70% og er unnið í vaktavinnu, viðkomandi þarf að geta unnið á morgun, kvöld- og helgarvöktum. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar. Gott væri ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Framfylgir hlutverki og markmiðum starfstöðvar
  • Sinnir faglegum verkefnum starfsstöðvarinnar undir stjórn forstöðumanns
  • Tekur þátt í fræðslu og faglegum stuðningi við dagleg störf starfsmanna
  • Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda
  • Veitir fötluðu fólki einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning í daglegu lífi
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfafræða, félagsvísinda eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. Starfsleyfi á viðeigandi sviði.
  • Reynsla af sambærilegu starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Samstarf- og skipulagshæfileikar
  • Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og samviskusemi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð tölvukunnátta
  • Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Umsækjandi þarf að hafa hreint sakavottorð.

Umsókn fylgi greinagóð ferilskrá ásamt leyfisbréfi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Halldórsdóttir, [email protected]

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 14. febrúar 2025

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt31. janúar 2025
Umsóknarfrestur14. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Svöluhraun 19, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar