Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur Smáraskóla

Smáraskóli leitar að þroskaþjálfa eða atferlissfræðingi skólaárið 2026-2027

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur og 80 starfsmenn. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar, skólinn er heilsueflandi grunnskóli og verið er að vinna að því að Smárskóli verði réttindaskóli UNICEF.

Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda og er teymiskennsla það fyrirkomulag sem lagt er til grundvallar. Allir kennarar ásamt nemendum í 5. – 10. bekk eru með spjaldtölvur og mikil áhersla er lögð á einstaklingsmiðun náms og fjölbreytta kennsluhætti.

Smáraskóli er staðsettur í fallegu umhverfi í Kópavogsdalnum og miklir möguleikar eru til hreyfingar, útivistar og útikennslu í nágrenni skólans.

Menntun og mannrækt er leiðarljós í starfi Smáraskóla.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi með metnaðarfullu starfsfólki í stoðþjónustu skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur með kennurum og öðrum samstafsaðilum að námi og þroska nemenda.
  • Annast þroska- og atferlisþjálfun nemenda
  • Veitir ráðgjöf og leiðsögn til samstarfsaðila
  • Kemur að gerð einstaklingsáætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur
  • Þekking og reynsla af vinnu með nemendum með fjölþættan vanda
  • Fagmennska, frumkvæði, metnaður og áhugi
  • Áhersla er lögð á lipurð í samstarfi og mannlegum samskiptum
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt5. mars 2026
Umsóknarfrestur19. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar