
Þorlákshöfn hafnsögumaður
Þorlákshafnarhöfn óskar eftir að ráða hafnsögumann við höfnina í Þorlákshöfn.
Starfið er unnið í vaktavinnu.
Starfið felur í sér leiðsögu skipa um hafnarsvæði skv. lögum um leiðsögu skipa nr. 34/1993.
Starfið felur í sér stjórn á hafnarbátum, leiðsögn og stjórn umferðar skipa um höfnina og leiðsögn/stýringu á skpum við innsiglingu í höfn.
Hafnsögumaður annast almenna starfsemi hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hann vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um löndun ásamt skráningu og skýrslugerðum sem við kemur allri umferð um hafnarsvæði og hafsögu.
Hafnsögumaður ber ábyrgð á viðhaldi á hafnarbátum/dráttarbátum hafnarinnar.
• Hafnsögumaður er tengiliður við Tollgæslu, Útlendingastofnun, Samgöngustofu og aðrar stofnanir vegna skipakoma.
• Sinnir hlutverki verndarfulltrúa gagnvart hafnarvernd og tryggir að öryggiskröfur hafnarreksturs séu uppfylltar.
• Tekur þátt í mannauðsstjórnun og daglegri samhæfingu starfsmanna hafnarinnar.
Öryggiseftirlit á hafnarsvæðum, öryggismál og mengunarvarnir falla einnig undir starfssvið hafnsögumanns ásamt ýmsum öðrum verkefnum, s.s. að raða skipum í höfn, binda skip við bryggju, afgreiða vatn og rafmagn til skipa og sinna daglegu viðhaldi hafna og búnaðar í samstarfi við aðra starfsmenn Þorlákshafnar.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf
• Skipstjórnarpróf 2.stigs réttindi er skilyrði og víðtæk reynsla af skipstjórn
• Almenn ökuréttindi
• Löggilding vigtarmanns er kostur
• Hafnsöguréttindi kostur
• Réttindi til hafnarverndar kostur
• Vélstjórnarpróf er kostur
• Vélavarðarréttindi er kostur
• Vinnuvélaréttindi er kostur
• Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Skipulagshæfileikar og nákvæmni við skráningu gagna
• Ríkuleg þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhersla er lögð á vandvirkni og nákvæmni í öllum störfum
• Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki
Íslenska
Enska

