Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Þjónustustjóri Reykjavíkurflugvallar

Við leitum eftir metnaðarfullum þjónustustjóra með skipulagshæfileika og góða yfirsýn til að starfa í öflugu teymi á skrifstofu Reykjavíkurflugvallar. Viðkomandi sér til þess að daglegur rekstur flugvallarins sé öruggur og skilvirkur, hefur umsjón með að unnið sé samkvæmt verklagi og samhæfir daglega starfsemi. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í skemmtilegu og alþjóðlegu umhverfi. Þjónustustjóri er staðgengill flugvallastjóra.

Helstu verkefni

  • Aðstoða flugvallastjóra við daglegan rekstur flugvallarins.
  • Rekstur flugvallarþjónustu og flugverndardeildar
  • Öryggis- og gæðamál
  • Áætlanagerð
  • Starfsmannamál
  • Samskipti við notendur
  • Önnur tilfallandi verkefni


Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun er kostur og eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði
  • Reynsla af verkefnastjórnun, ásamt ferla- og áætlanagerð er kostur
  • Þekking á öryggis- og gæðastjórnunarkerfum
  • Reynsla og kunnátta af notkun ýmissa vinnuvéla og tækjabúnaðar er kostur
  • Góð samskiptahæfni og tölvukunnátta
  • Nákvæm, sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt miklum skipulagshæfileikum
  • Góð íslensku og enskukunnátta í ræðu og riti


Starfsstöð er á Reykjavíkurflugvelli

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí. Nánari upplýsingar veitir Viðar Jökull Björnsson umdæmisstjóri í netfangið vidar.bjornsson@isavia.is

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing stofnuð12. júní 2024
Umsóknarfrestur8. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Reykjavíkurflugvöllur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar