Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustustjóri - Heilsugæslan Mosfellsumdæmi

Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að skipulögðum og drífandi einstakling í starf þjónustustjóra sem jafnframt er aðstoðarmaður svæðisstjóra. Viðkomandi þarf að vera sjálfstæður og lausnamiðaður með frábæra samskiptahæfni. Heilsugæslan leggur áherslu á þverfaglega og góða samvinnu fagstétta með hag skjólstæðingsins að leiðarljósi, þar sem teymisvinna er í lykilhlutverki.

Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi getið hafið störf 1. febrúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hefur yfirsýn yfir rekstur stöðvarinnar í samráði við svæðisstjóra. 
  • Er aðstoðarmaður svæðisstjóra.
  • Stýrir daglegum rekstri skrifstofu heilsugæslustöðvar.
  • Þátttaka í ráðningarferli starfsfólks og móttöku nýrra starfsmanna í samráði við svæðisstjóra og stoðsvið HH.
  • Mótun, samræming og eftirfylgni verklagsreglna. 
  • Þátttaka í úttektum og framsetningu tölulegra gagna um þjónustuna, Þjónustukannanir og árangursmælingar.
  • Gæða- og öryggismál starfsstöðvar í samráði við svæðisstjóra, stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar.
  • Ráðgjöf og þjónusta við starfsmenn og þjónustuþega.
  • Fylgist með skráningu skjólstæðinga  á stöðina og skiptingu þeirra á lækna.
  • Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu.
  • Þátttaka í áætlanagerð
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Viðbótarmenntun æskileg
  • Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og góðir skipulagshæfileikar
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg
Auglýsing birt4. desember 2024
Umsóknarfrestur18. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sunnukriki 3, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SálfræðingurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Viðskiptafræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar