
Vinnumálastofnun
Hlutverk Vinnumálastofnunar
Vinnumálastofnun heyrir undir félagsmálráðuneytið og fer m.a. með yfirstjórn vinnumiðlunar í landinu og daglega afgreiðslu Atvinnuleysistryggingasjóðs, Fæðingarorlofssjóðs, Ábyrgðarsjóðs launa auk fjölmargra annara vinnumarkaðstengdra verkefna.
Þjónustusérfræðingur
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða einstakling til að sinna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd í úrræði á vegum stofnunarinnar.
Starfið felur m.a. í sér þjónustuviðtöl, ráðgjöf og upplýsingagjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd og samskipti við hagsmunaaðila. Viðkomandi myndi einnig vera tengiliður við öryggisverði og sinna reglubundnu eftirliti á húsnæði og íbúaeiningum ásamt því að vera tengiliður við húsnæðisteymi stofnunarinnar.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar; Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónustuviðtöl, ráðgjöf og upplýsingagjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd
- Dagleg umsjón með húsnæði og íbúaeiningum
- Samskipti við öryggisverði, húsnæðisteymi, þjónustuaðila og aðra hagsmunaaðila
- Margvísleg skrifstofustörf og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund
- Reynsla af þjónustustörfum
- Reynsla af umsjón með húsnæði er kostur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
- Góð almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð færni í spænsku og arabísku er kostur
- Reynsla að vinna með fólki af ólíkum menningaruppruna kostur
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
SpænskaValkvætt
ArabískaValkvætt
Staðsetning
Hringbraut 121, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Maintenance Worker – Full-Time / Minimum 6 Months
Hótel Dyrhólaey

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Umhverfis- og framkvæmdasvið - Verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda
Reykjanesbær

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Tæknimaður á Akureyri
Coca-Cola á Íslandi