Bifvélavirkinn ehf
Bifvélavirkinn ehf
Bifvélavirkinn ehf

Þjónusturáðgjafi – Verkstæði

Ert þú með lausnamiðað hugarfar og ríka þjónustulund?
Áttu auðvelt með að byggja upp traust í samskiptum, hlusta á þarfir viðskiptavina og útskýra tæknileg atriði á skýran og skiljanlegan hátt? Finnst þér ánægjulegt að vinna með fólki og leggja áherslu á fagmennsku og jákvæða upplifun viðskiptavina?

Ertu skipulagður, nákvæmur og með góða yfirsýn?
Geturðu unnið markvisst eftir ferlum, haldið utan um mörg verkefni í einu og sinnt eftirfylgni af ábyrgð, jafnvel þegar álag er mikið? Hefurðu viðskiptalegan hugsunarhátt og vilja til að læra og þróast í starfi?

Um starfið

Þjónusturáðgjafi gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri verkstæðisins og er aðaltengiliður viðskiptavina. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér samskipti, skipulag og eftirfylgni verka í nánu samstarfi við verkstæði og viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta viðskiptavina

  • Skráning og utanumhald verka í verkstæðiskerfi

  • Samskipti við verkstæði og viðskiptavini um stöðu, kostnað og afhendingu

  • Skipulag afhendinga og frágangur reikninga

  • Eftirfylgni með gæðum og þjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustustörfum, helst í bílgreinum eða sambærilegu umhverfi

  • Góð samskiptahæfni í íslensku og ensku, í tali og riti

  • Góð tölvukunnátta og skipulögð vinnubrögð

  • Sjálfstæði, ábyrgð og jákvætt viðmót

Umsókn

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið í gegnum Alfreð. Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt19. apríl 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Steinhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar