Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Þjónusturáðgjafi í langtímaleigudeild

Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi í stöðu þjónusturáðgjafa til að styrkja þjónustuteymið okkar. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfsstöðin er í Skútuvogi 8, 104 Reykjavík.

Þínar þarfir - Okkar þjónusta er okkar slagorð og því leitum við eftir starfsfólki með framúrskarandi þjónustulund.

Vinnutími er kl. 8:00-17:00 virka daga, möguleiki á vinnu einn laugardagur í mánuði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina 
  • Símsvörun og afgreiðsla fyrirspurna  
  • Tilboðsgerð, uppsetning og frágangur leigusamninga  
  • Móttaka viðskiptavina vegna útleigu bíls og og almennrar þjónustu við hann 
  • Skoðun og ástandslýsing bifreiða 
  • Eftirlit með bílum í ferli 
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskrandi þjónustulund
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf, réttindi á beinskipta bíla skilyrði
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota.  Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum. 

Bílaleiga Akureyrar er fyrsta íslenska bílaleigan til að sérhæfa sig í langtímaleigu til fyrirtækja og einstaklinga. Umfang bílaflotans gerir okkur kleift að bjóða upp á fjölbreytta bíla til langtímaleigu og þannig brugðist við ólíkum þörfum viðskiptavina okkar. 

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður. 

Auglýsing birt22. ágúst 2025
Umsóknarfrestur2. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skútuvogur 8, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar