
Centara
Centara er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í gervigreind og sjálfvirkni fyrir vinnslu reikninga og pantana.
Þjónusturáðgjafi
Hugsar þú í lausnum og brennur fyrir því að sjá fyrirtæki ná árangri með tækni? Viltu vera hluti af öflugu teymi og sækja á erlenda markaði?
Centara er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í gervigreind og sjálfvirkni fyrir vinnslu reikninga og pantana. Við erum að vaxa hratt og leitum að ráðgjafa sem vill vaxa með okkur.
Þú verður sérfræðingur í lausnum Centara og lykiltenging milli okkar, samstarfsaðila og viðskiptavina. Þú munt koma að innleiðingum, veita þjálfun, greina tæknileg vandamál og hjálpa viðskiptavinum að fá sem mest út úr lausnunum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við innleiðingar hjá viðskiptavinum
- Þjálfun og leiðbeiningar til samstarfsaðila
- Greining og úrlausn tæknilegra vandamála
- Þróun þjálfunarefnis og notendahandbóka
- Samskipti við samstarfsaðila og viðskiptavini á Íslandi og erlendis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur reynslu af Microsoft Dynamics 365 Business Central eða NAV
- Þekkir ferla tengda innkaupum, viðskiptakröfum (AR) eða viðskiptaskuldum (AP)
- Hefur unnið í innleiðingar- eða ráðgjafarhlutverki
- Talar og skrifar íslensku og ensku af öryggi
- Getur útskýrt flókin mál á einfaldan og skýran máta
- Þekking á rafrænum reikningum, PEPPOL eða EDI er sérstaklega vel þegin
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegan vinnutími og möguleika á fjarvinnu
- Íþrótta- og samgöngustyrk
- Raunveruleg tækifæri til framgangs — við erum að vaxa og þú getur vaxið með okkur
- Spennandi starf þar sem þú ert ekki aðeins að framkvæma — þú tekur þátt í uppbyggingunni
Auglýsing birt26. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Microsoft Dynamics 365 Business CentralNavision
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Sérfræðingur í upplýsingatækni – Samherji Fiskeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Infrastructure Engineer
Skývafnir

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust