Þjónusturáðgjafi
Hefur þú áhuga á málefnum vinnumarkaðarins?
Stéttarfélag Vesturlands leitar eftir öflugum þjónusturáðgjafa í lifandi og fjölbreytt starf á skrifstofu félagsins í Borgarnesi. Um er að ræða fullt starf.
Helstu verkefni og skyldur
- Almenn þjónusta við félagsmenn á skrifstofu
- Framfylgd reglna og laga sem gilda á vinnumarkaði
- Taka þátt í vinnustaðaeftirliti á svæðinu
- Ýmis önnur verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
· Nám sem nýtist í starfi
· Haldgóð reynsla sem nýtist í starfi
· Þekking á vinnurétti og læsi á lög og reglugerðir er kostur
· Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og vilji til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni
· Góð tölvukunnátta og færni í upplýsinga og tæknimálum
· Framúrskarandi hæfni og lipurð í samstarfi og samskiptum
· Góð færni íslensku og ensku, fleiri tungumál eru mikill kostur
· Hafa áhuga á velferð fólks og verkalýðsmálum
Nánari upplýsingar veita formaður félagsins, netfang: silja@stettvest.is og skrifstofustjóri, netfang: anna@stettvest.is. Síminn er 430-0430 eða 698-8685 hjá formanni.
Umsóknarfrestur er til 15.maí nk.
Umsóknir skulu berast á netfangið silja@stettvest.is