
Síminn Pay
Síminn Pay er fjártæknifyrirtæki í eigu Símans þar sem hefur það að markmiði að þróa nýstárlegar fjártæknilausnir fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Síminn Pay gefur út greiðslukort, Léttkort, í samstarfi við Mastercard og varð þá fyrsta íslenska fyrirtækið utan bankastofnanna til að gefa út kort.
Síminn Pay er traust og framsækið fyrirtæki sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar. Við bjóðum uppá aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki.

Þjónustufulltrúi - Síminn Pay
Við leitum að öflugum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa hjá Síminn Pay. Þjónustufulltrúi sinnir fjölbreyttum verkefnum sem snúa að þjónustu við viðskiptavini, úrvinnslu þjónustumála og samskiptum við bæði innri og ytri hagaðila. Viðkomandi aðili yrði hluti af litlu en öflugu teymi þar sem reynir mikið á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og lausnamiðaða hugsun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini Símans Pay
- Skráning, úrvinnsla og eftirfylgni þjónustumála
- Samskipti við innri og ytri hagaðila eftir þörfum, svo sem innri framlínu og þróunarteymi
- Bakvinnsla tengd þjónustumálum og innleiðingu viðskiptavina
- Taka þátt í stöðugum umbótum á ferlum og þjónustuupplifun viðskiptavina
- Tryggja faglega og samræmda þjónustu í samræmi við verklag og gæðaviðmið
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum í fjármála- eða tæknigeiranum er æskileg
- Fjármála- eða bókhaldsþekking kostur
- Framúrskarandi samskipta- og þjónustuhæfni
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Geta til að vinna vel í teymi og í hröðu umhverfi
- Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt18. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Er Garðabær með draumastarfið þitt í sumar?
Garðabær

Þjónustufulltrúi - Móttaka
Icetransport

Viltu bæta lífsgæði fólks?
Stoð

Starfskraftur í Þjónustuver - Afleysing
ÓJ&K - Ísam ehf

Þjónustufulltrúar vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Þjónustufulltrúi á Stjórnstöð í sumar!
Securitas

Fulltrúi í akstursdeild
Brimborg

SUMARSTÖRF
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Bílstjóri/Shuttle service
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Sumarstarf í móttöku / Summer Reception Agent – Icerental4x4
Icerental4x4

Það á að vera gaman í vinnunni...
Takk ehf