Þjónustufulltrúi - Reykjavík
Við leitum að jákvæðu og metnaðarfullu starfsfólki í þjónustu- og afgreiðslustörf hjá Bílaleigu Akureyrar á starfsstöðvum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu. Starfsstöðvarnar eru í Skútuvogi og Njarðargötu (Fluggarðar, skammt frá Reykjavíkurflugvelli).
Þínar þarfir - Okkar þjónusta er okkar slagorð og því leitum við eftir starfsfólki með framúrskarandi þjónustulund.
Vinnutími er kl. 8:00-17:00 virka daga og ein helgi í mánuði eða 2-2-3 vaktafyrirkomulag.
- Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
- Útleiga og móttaka á bílum
- Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Ferjanir á bílum
- Fjölbreytt tilfallandi verkefni
- Rík þjónustulund
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð almenn tölvukunnátta
- Bílpróf
- Íslensku- og enskukunnátta
Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota. Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.
Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.