
Jónar Transport
Jónar Transport bjóða upp á öflugar heildarlausnir fyrir fyrirtæki í flutningum til og frá landinu.
Jónar Transport bjóða upp á flutninga bæði í sjó og í lofti, til og frá Íslandi og aðstoð við alla skjalagerð er tengist flutningum.
Í þessu felst að Jónar Transport getur látið sækja eða flytja vöruna heim að dyrum birgja nánast hvar sem er í heiminum, komið henni í skip eða flugvél eftir þörfum og séð um alla tilheyrandi skjalameðhöndlun erlendis og hérlendis, ásamt þeirri vöruhúsa- og akstursþjónustu sem til þarf.
Það færist í vöxt að viðskiptavinir sjá sér hag í því að kaupa heildarþjónustu í flutningum með því að sendingar séu afhentar frá dyrum til dyra, (svokölluð door to door þjónusta). Í raun er þetta bein afleiðing almennrar þróunar í vörustjórnun sem felst í því að efla tengslin og stuðla að auknu upplýsingaflæði í aðfangakeðju fyrirtækja.
Jónar Transport skapa virðisaukandi þjónustu með því að koma inn í aðfangakeðju fyrirtækja með heildarlausnir í flutningum og vöruhúsamálum þannig að fyrirtækin sjálf geta beitt sér betur að sínum sterkustu hliðum.

Þjónustufulltrúi í sérverkefnadeild
Jónar Transport óska eftir að ráða þjónustufulltrúa sérverkefnadeild fyrirtækisins. Í starfinu felst m.a. tilboðsgerð, utanumhald um sendingar í innflutningi og útflutningi, ásamt fjölmörgu öðru.
Við sækjumst eftir einstaklingi með mjög góða tölvukunnáttu og vinnur nákvæmt með upplýsingar og gögn. Starfshlutfall er 100%. Unnið er í dagvinnu, frá kl. 08:00-16:00 en viðkomandi þarf að hafa getu til að vinna lengur og/eða um helgar sé þess þörf. Starfið er laust og æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Mjög rík þjónustulund og sveigjanleiki í starfi.
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli
- Bílpróf
Helstu verkefni
- Samskipti við viðskiptavini hér heima og erlendis, flutningafyrirtæki og tollayfirvöld.
- Finna lausnir í flutningum fyrir viðskiptavini.
- Eftirfylgni með sendingum, reikingagerð og tilfallandi verkefni.
- Veita framúrskarandi og persónulega þjónustu við alla viðskiptavini.
Við hvetjum áhugasama einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Jónar Transport.
Auglýsing birt6. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Samskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi í langtímaleigudeild í Reykjavík
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Þjónusturáðgjafi
Alþjóðasetur

Starfsmaður í afgreiðslu í Vestmanneyjum
Samskip

Meiraprófsbílstjóri í akstursdeild SORPU
SORPA bs.

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Þjónusturáðgjafi hjá Gengli ehf.
Gengill ehf.

Prófdómari í bóklegum ökuprófum á höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Pökkunar og flutningamaður óskast í sumar
Pökkun & Flutningar ehf

Sölu- og þjónustufulltrúar í verslun Símans í Ármúla
Síminn

Bifreiðastjóri í sumarvinnu
Prentmet Oddi ehf.

Ísafjörður - Bílstjóri í sumarstarf
Pósturinn