
Jónar Transport
Jónar Transport bjóða upp á öflugar heildarlausnir fyrir fyrirtæki í flutningum til og frá landinu.
Jónar Transport bjóða upp á flutninga bæði í sjó og í lofti, til og frá Íslandi og aðstoð við alla skjalagerð er tengist flutningum.
Í þessu felst að Jónar Transport getur látið sækja eða flytja vöruna heim að dyrum birgja nánast hvar sem er í heiminum, komið henni í skip eða flugvél eftir þörfum og séð um alla tilheyrandi skjalameðhöndlun erlendis og hérlendis, ásamt þeirri vöruhúsa- og akstursþjónustu sem til þarf.
Það færist í vöxt að viðskiptavinir sjá sér hag í því að kaupa heildarþjónustu í flutningum með því að sendingar séu afhentar frá dyrum til dyra, (svokölluð door to door þjónusta). Í raun er þetta bein afleiðing almennrar þróunar í vörustjórnun sem felst í því að efla tengslin og stuðla að auknu upplýsingaflæði í aðfangakeðju fyrirtækja.
Jónar Transport skapa virðisaukandi þjónustu með því að koma inn í aðfangakeðju fyrirtækja með heildarlausnir í flutningum og vöruhúsamálum þannig að fyrirtækin sjálf geta beitt sér betur að sínum sterkustu hliðum.

Þjónustufulltrúi í sérverkefnadeild
Jónar Transport óska eftir að ráða þjónustufulltrúa sérverkefnadeild fyrirtækisins. Í starfinu felst m.a. tilboðsgerð, utanumhald um sendingar í innflutningi og útflutningi, ásamt fjölmörgu öðru.
Við sækjumst eftir einstaklingi með mjög góða tölvukunnáttu og vinnur nákvæmt með upplýsingar og gögn. Starfshlutfall er 100%. Unnið er í dagvinnu, frá kl. 08:00-16:00 en viðkomandi þarf að hafa getu til að vinna lengur og/eða um helgar sé þess þörf. Starfið er laust frá 1. apríl 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðeigandi menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Mjög rík þjónustulund og sveigjanleiki í starfi.
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta í mæltu og rituðu máli
- Bílpróf
Helstu verkefni
- Samskipti við viðskiptavini hér heima og erlendis, flutningafyrirtæki og tollayfirvöld.
- Finna lausnir í flutningum fyrir viðskiptavini.
- Eftirfylgni með sendingum, reikingagerð og tilfallandi verkefni.
- Veita framúrskarandi og persónulega þjónustu við alla viðskiptavini.
Við hvetjum áhugasama einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um.
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Jónar Transport.
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kjalarvogur 7-15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Samskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSveigjanleikiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Orkusalan

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Sérfræðingur á hugverkasviði
Hugverkastofan

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðismóttöku Ford
Ford á Íslandi | Brimborg

Móttöku og þjónustufulltrúi við Móttökustöðina á Strönd
Sorpstöð Rangárvallasýslu

Sölumaður - Prívat lúxusferðir
Deluxe Iceland

Gestgjafi hjá Öskju
Bílaumboðið Askja

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.