
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Þjónustufulltrúi í heildsölu hjólbarða
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi í hjólbarðaheildsölu Kletts í Klettagörðum. Verkefnin eru fjölbreytt og vinnuaðstaða til fyrirmyndar.
Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er 8:00 - 17:00 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við viðskiptavini
Umsjón og afgreiðsla á hjólbarðapöntunum
Umsýsla og önnur tilfallandi verkefni í hjólbarðaheildsölu
Menntunar- og hæfniskröfur
Stundvísi
Góð íslenskukunnátta, í tali og rituðu máli
Góð samstarfs- og samskiptahæfni
Hreint sakarvottorð
Áhugi og þekking á hjólbörðum er kostur.
Fríðindi í starfi
Niðurgreiddur matur.
Sterkt og virkt starfsmannafélag.
Íþróttastyrkur.
Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Auglýsing birt7. maí 2025
Umsóknarfrestur25. maí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
StundvísiÚtkeyrslaVöruflutningar
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Læknamóttökuritari 50% staða
Útlitslækning

Starfskraftur afgreiðslu á Höfuðborgarsvæðinu
Frumherji hf

Launafulltrúi
Landspítali

Innkaupafulltrúi
Aðföng

Lager/Sala
Hitatækni ehf

Við leitum að frábærum liðsauka í lagerteymið okkar
Stilling

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Djúpavogi
Stjórnsýslu-og fjármálasvið

Móttaka - Receptionist
Hótel Höfn

Staff and Quality Manager - Fjallsárlón
Fjallsárlón ehf.

Framtíðarstarf á lager (verkstæði) og við útkeyrslu.
NormX

Leitum að öflugum liðsfélaga á Selfoss
Stilling

Sala og skipulagning skyndihjálp
Rauði krossinn á Íslandi