Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu. Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu. Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín. Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Þjónustufulltrúi - Geðheilsumiðstöð barna

Geðheilsumiðstöð barna auglýsir eftir þjónustufulltrúa í ótímabundið starf. Starfshlutfall er 100% eða eftir nánara samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf 1. júlí eða eftir nánara samkomulagi.

Geðheilsumiðstöð barna er miðstöð geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn á landsvísu, staðsett innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Miðstöðin sameinar starfsemi þriggja starfseininga innan heilsugæslunnar; Þroska og hegðunarstöð, Geðheilsuteymi fjölskylduvernd og nýtt meðferðarteymi fyrir börn og unglinga.

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og móttaka skjólstæðinga
Móttaka tímapantana í síma
Vinnsla og útsending gagna
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Heilbrigðisgagnafræði eða nám sem nýtist í starfi
Reynsla af sambærilegu starfi og/eða skrifstofustarfi æskileg
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum nauðsynleg
Góð almenn tölvukunnátta
Góð íslenskukunnátta, bæði rituð og töluð nauðsynleg
Góð almenn enskukunnátta æskileg
Auglýsing stofnuð16. maí 2023
Umsóknarfrestur30. maí 2023
Starfstegund
Staðsetning
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Má bjóða þér smákökur? Alfreð notar vafrakökur til að greina umferð um vefinn og bæta upplifun þína. Sjá meira.