Leiguskjól
Leiguskjól
Leiguskjól

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til að ganga til liðs við okkur hjá Myigloo og Leiguskjóli. Við erum í stöðugum vexti og vantar öflugan liðsmann sem hefur bæði brennandi áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu og getu til að selja vörur okkar þegar við á.

Markmið okkar er að gera leigumarkaðinn einfaldari, öruggari og gagnsærri fyrir bæði leigusala og leigjendur. Sem þjónustu- og sölufulltrúi spilar þú lykilhlutverk í að tryggja að viðskiptavinir okkar fái bestu mögulegu upplifun af þjónustunni okkar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjónusta í síma og tölvupósti þar sem þú aðstoðar viðskiptavini. Greinir og leysir fljótt og örugglega úr áskorunum viðskiptavina o.fl. sem tengist þjónustu við viðskiptavini okkar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og reynsla af þjónustustörfum.

  • Söluhæfileikar og reynsla af sölustörfum er kostur.

  • Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt hugarfar.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.

  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi.

  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og færni til að halda ró sinni undir álagi.

Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur15. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar