

Þjónusta í apóteki - Sumarstarf
Lyf og heilsa leitar að starfsmönnum í 100% starf í apótek félagsins á Höfuðborgarsvæðinu í Sumar. Möguleiki á áframhaldandi hlutastarfi - upplagt starf með skóla.
Starfssvið:
- Ráðgjöf til viðskiptavina
- Almenn þjónusta og sala
Hæfniskröfur:
- Reynsla af starfi í apóteki er kostur
- Framúrskarandi íslenskukunnátta
- Mikil þjónustulund og jákvæðni
- Lágmarksaldur er 20 ára
Gert er ráð fyrir að starfsmenn sem starfa í sumarafleysingum séu að leysa af starfsmenn í sumarleyfum, því er mikilvægt að viðkomandi sé ekki með fyrirhugað frí á tímabilinu 15 júní - 15 ágúst.
Um Lyf og heilsu:
Lyf og heilsa á og rekur 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Lyf og heilsa, Apótekarinn, Garðsapótek og Apótek Hafnarfjarðar. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.
Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.
Íslenska










