Teymisstjóri óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Austurmiðstöð leitar að kröftugum og faglegum teymisstjóra á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk að Vættaborgum 82. Um fullt starf er að ræða og er unnið bæði á skrifstofunni og á vöktum með íbúum. Í kjarnanum eru 6 einstaklingsíbúðir. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. janúar eða fyrr eftir samkomulagi.
Teymisstjóri vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks við að efla færni íbúa, styðja við sjálfstæði með ákvarðanastuðningi, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auknum lífsgæðum.
Þjónusta við íbúa er einstaklingsmiðuð og aðlöguð að breytilegum þörfum og aðstæðum íbúa. Teymisstjóri starfar í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, gildandi lög og reglugerðir í málefnum fatlaðs fólks og félagsþjónustu og önnur viðeigandi lög.
- Leiðir teymi íbúa og útdeilir verkefnum til starfsfólks í samráði við forstöðumann.
- Hefur umsjón með fjármálum, heilsufarsmálum og daglegri þjónustu við íbúa í samráði við forstöðumann.
- Starfar í teymi stjórnenda íbúðakjarnans ásamt forstöðumanni og öðrum teymisstjórum.
- Gerð og eftirfylgd einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
- Leiðsögn til starfsmanna um framkvæmd þjónustu við íbúa.
- Þátttaka í þróunar- og umbótastarfi í samstarfi við forstöðumann.
- Samráð og samvinna við íbúa, aðstandendur, starfsfólk og aðra þjónustuaðila íbúa.
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á þjónandi leiðsögn, hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og valdeflingu.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með flóknar og fjölbreyttar þjónustuþarfir.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta. B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Sund og menningarkort Reykjavíkurborgar
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur