
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Teymisstjóri á heimili fyrir fatlað fólk
Velferðarsvið óskar eftir þroskaþjálfa eða öðrum fagaðila í 100% tímabundið starf teymisstjóra á heimili fatlaðs fólks í Kópavogi í eitt ár.
Um er að ræða tíu íbúða kjarna sem veitir þjónustu til fólks með ólíkar fatlanir. Starfið felst í persónulegum stuðningi og þátttöku í faglegu starf í samvinnu við forstöðuþroskaþjálfa, deildarstjóra og aðra teymisstjóra
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Um er að ræða fullt starf í vaktarvinnu, þó mest á dagvöktum.
Staðan er laus 1. júní 2026
Umsóknafrestur er til 11. mars 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á faglegu starfi í samvinnu við forstöðumann, deildarstjóra og aðra teymisstjóra
- Þátttaka í gerð einstaklingsáætlana
- Veitir stuðning við íbúa í þeirra daglega lífi, jafnt innan sem utan heimilis.
- Hefur yfirsýn yfir þjónustuþarfir íbúa í sínu teymi og tryggir að starfsemin mæti þeim.
- Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi til að starfa sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði mennta- eða félagsvísinda sem nýtist í starfinu.
- Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki á heimilum þeirra nauðsynleg.
- Framtakssemi og jákvæðni í starfi.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, ábyrgðarkennd og frumkvæði.
- Starfið getur verið líkamlega og andlega krefjandi
- Reynsla af því að leiða faglegt starf er æskilegt
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sund í sundlaugum bæjarins.
Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Austurkór 3b, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Spennandi sumarstarf: stuðningsfulltrúi óskast á besta stað í bænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Arnarskóli - sumarstarfsfólk
Arnarskóli

Sumarstarf sem skiptir máli! Vertu hluti af öflugu og samheldnu teymi í Stjörnugróf 11
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf námsmanns á velferðarsviði Múlaþings Egilsstöðum
Fjölskyldusvið

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljakot
Leikskólinn Seljakot

Spennandi starf í skaðaminnkandi íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Er Garðabær með draumastarfið þitt í sumar?
Garðabær

Skemmtilegt starf í sveitinni. Tíma-, sumar- og hlutastarf.
Andrastaðir

Starfsmaður í Skammtímadvöl fyrir börn
Skammtímadvöl Leirvogstungu